Persónuvernd
Enord ehf., kt. 700424-1540, Reykjavík, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á enord.is. Síðan er hönnuð þannig að hún safni eins litlu um þig og hægt er.
Engar vafrakökur
Síðan setur engar vafrakökur í tækið þitt og notar engar rakningarlausnir frá þriðja aðila. Leturgerðir og myndir eru hýstar á síðunni sjálfri. Þess vegna er enginn kökuborði.
Heimsóknartölur
Við notum Umami til að telja heimsóknir. Umami skráir hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan gesturinn kemur (til dæmis leitarvél eða LinkedIn), tegund vafra og stýrikerfis og land. IP-talan er notuð í svipinn til að greina land og búa til nafnlaust auðkenni fyrir daginn, en hún er ekki geymd.
Gögnin eru ekki persónugreinanleg, þeim er ekki deilt með öðrum og þau eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins. Lagagrundvöllur vinnslunnar eru lögmætir hagsmunir okkar af því að vita hvernig síðan er notuð.
Tölvupóstur og fyrirspurnir
Þegar þú sendir okkur tölvupóst eða hringir vinnum við úr þeim upplýsingum sem þú lætur okkur í té, nafni, netfangi og efni erindisins, til að svara þér. Við geymum samskiptin eins lengi og þarf til að sinna erindinu og í samræmi við bókhaldslög þegar viðskipti komast á. Upplýsingarnar eru ekki notaðar í markaðssetningu og þeim er ekki deilt með öðrum.
Hýsing
Síðan er hýst hjá Microsoft Azure í Vestur-Evrópu. Eins og aðrir vefþjónar skráir hýsingaraðilinn tæknilegar upplýsingar um beiðnir í öryggisskyni, í takmarkaðan tíma.
Þinn réttur
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þau gögn sem við höfum um þig, fá þau leiðrétt eða þeim eytt. Sendu okkur línu á enord@enord.is. Þú getur líka beint kvörtun til Persónuverndar, personuvernd.is.
Síðast uppfært í október 2026.