Rafmagnsvörubíll í hleðslu

Rafmagnsvörubílar þurfa meira en hleðslustöð.

Við hönnum hleðsluinnviði fyrir vörubíla, rútur og flota: rétta stærð heimtaugar, réttan fjölda hleðslustöðva og álagsstýringu sem heldur kostnaði niðri. Allt byggt á raunverulegum rekstri, ekki hámarksafli.

Það sem þú færð

Hleðsluinnviðir í réttri stærð

Við hönnum fjölda og afl hleðslustöðva og stærð heimtaugar út frá rekstrinum, hvorki meira né minna en þarf.

Rafvæða núna, ekki þegar dreifikerfið er tilbúið

Við sýnum hve stóran hluta flotans núverandi heimtaug ber nú þegar.

Allir fara fullhlaðnir

Bílarnir hlaðnir og forhitaðir fyrir fyrstu ferð, sumar og vetur, skipulagt út frá áætluninni.

Lægri aflkostnaður, á hverju ári

Lægri afltoppur þýðir minni heimtaug og lægri aflgjöld.

Tveir upphafspunktar

Ekki byrjuð

Gerið þetta rétt áður en byggt er. Fjöldi hleðslustöðva, afl og heimtaug eru ákveðin út frá áætluninni, búnaður keyptur einu sinni og hleðsluinnviðirnir stækka í takt við flotann.

Þegar með hleðslu

Bætið við bílum án nýrrar heimtaugar, lækkið afltoppinn og aflgjöldin og prófið hve vel núverandi uppsetning þolir áföll.

Við seljum hvorki hleðslustöðvar né búnað, svo ráðgjöfin miðast við flotann, aksturinn og bækistöðina.

Meðal viðskiptavina

  • Strætó bs.
  • Orka náttúrunnar
  • RARIK
  • Reykjavíkurborg
  • Orkubú Vestfjarða
  • Kynnisferðir

Ertu að rafvæða flota?

Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.

Senda tölvupóst
Netfang
enord@enord.is
Sími
840 4935
LinkedIn
Hrafn Leó Guðjónsson
Staðsetning
Reykjavík