Öll verkefni

Orka náttúrunnar · Hraðhleðslustöð

Álagsjöfnun með sólarorku og rafhlöðu

Sólarorka og rafhlaða samþætt við hraðhleðslustöð ON að Bæjarhálsi til að lækka afltoppinn á heimtaug og prófa lausnina við íslenskar aðstæður.

100 kW PV · 466 kWh BESS

Álagsjöfnun með sólarorku og rafhlöðu

Áskorunin

Hraðhleðslan að Bæjarhálsi skapaði háa afltoppa og álag á heimtaugina. Með vaxandi eftirspurn hækkuðu aflgjöld og staðurinn stefndi í að þurfa stærri heimtaug. ON vildi jafnframt afla reynslu af sólarorku og rafhlöðum í hleðsluinnviðum, sem var lítið reynt hér á landi.

Hvað gerðum við

  • Hönnuðum kerfi með 100 kW sólarorku og 466 kWh rafhlöðu, samþætt við hraðhleðsluna
  • Skilgreindum kerfisuppbyggingu, stýristefnu og álagsjöfnun
  • Skrifuðum kröfulýsingu fyrir rafhlöðukerfi og samskipti við orkustýrikerfi
  • Sáum um innkaupaferlið, mat á lausnum og val innan fjárhagsramma, í samskiptum við birgja og verktaka

Niðurstaða

  • Lægri afltoppur á heimtaug og betri nýting hennar
  • 100 kW sólarorka og 466 kWh rafhlaða í rekstri
  • Tilraunakerfi sem gefur rekstrarreynslu fyrir aðrar hleðslustöðvar

Lærdómur

Þegar hraðhleðsla vex verður orkustýring jafn mikilvæg og hleðslustöðvarnar sjálfar.

Tengd þjónusta

Með svipað verkefni í huga?

Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.

Senda tölvupóst
Netfang
enord@enord.is
Sími
840 4935
LinkedIn
Hrafn Leó Guðjónsson
Staðsetning
Reykjavík