Öll þjónusta

Hermun og hönnun

Vitið hvað þarf áður en þið fjárfestið

Stærsti sparnaðurinn í hleðsluinnviðum næst á hönnunarstigi. Með hermun í ChargeSim sést hve mikið afl þarf í raun, hvernig álagsstýring lækkar afltoppinn og hvað er hægt að komast af með litla heimtaug. Niðurstaðan eru hagkvæmir hleðsluinnviðir sem styðja við reksturinn.

Hermun og hönnun

Fyrir hverja

Flotafyrirtæki, rekstraraðila hleðslustöðva og hönnuði sem þurfa traustar tölur á bak við ákvarðanir.

Hvað gerum við

  • Hermum hleðsluþörfina í ChargeSim út frá akstursgögnum eða áætlunum
  • Hönnum álagsstýringu: kyrrstæða og dýnamíska skiptingu afls milli stöðva
  • Metum hámarksafl og samtímaálag
  • Gerum næmnigreiningu: hvað gerist ef flotinn stækkar eða áætlun breytist
  • Sjáum um rafmagnshönnun: strengjaval, varnir, töflur og uppdrætti

Það sem þú færð

Hermunarniðurstöður með skýrum tölum um afl, orku og fjölda hleðslustöðva, tillögu að álagsstýringu og rafmagnshönnun tilbúna fyrir rafverktaka.

Hafa samband

Sendu okkur akstursgögn eða áætlun og við hermum hleðsluþörfina.

Hafa samband

Ertu að rafvæða flota?

Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.

Senda tölvupóst
Netfang
enord@enord.is
Sími
840 4935
LinkedIn
Hrafn Leó Guðjónsson
Staðsetning
Reykjavík