Strætó bs. og Kynnisferðir · Almenningssamgöngur
Hleðsluinnviðir í bækistöð fyrir 70 strætisvagna
Hönnun á hleðsluinnviðum fyrir 70 rafmagnsstrætisvagna í bækistöð, með 3,5 MW afli, háspennudreifingu innan svæðis og þremur spennistöðvum. Verkið lagði tæknilegan grunn að útboði.
3,5 MW · 70 vagnar · 3 spennistöðvar

Áskorunin
Strætó var að fjölga rafvögnum og þurfti bækistöð sem gæti hlaðið stóran flota á hverri nóttu. Þetta snerist ekki um að setja upp hleðslustöðvar heldur um afl í megavöttum, nýja háspennudreifingu innan svæðis og hleðsluáætlun sem héldi áætlun vagnanna. Þar sem Strætó er í opinberri eigu þurfti lausnin að vera skýrt skilgreind áður en hægt var að bjóða hana út.
Hvað gerðum við
- Greindum hleðsluþörfina út frá áætlun vagnanna: hvenær þeir koma inn, hve lengi þeir standa og hve mikla orku þeir þurfa
- Hönnuðum hleðsluinnviði fyrir 70 vagna með 3,5 MW heildarafli
- Skilgreindum háspennudreifingu innan bækistöðvarinnar og staðsetningu þriggja spennistöðva til að lágmarka töp
- Gerðum ráð fyrir stækkun flotans í hönnuninni
Niðurstaða
- Hleðsluinnviðir fyrir 70 vagna, 3,5 MW, hannaðir út frá raunverulegum rekstri en ekki fræðilegu hámarksafli
- Háspennudreifing og þrjár spennistöðvar innan svæðis
- Tilbúinn grunnur fyrir útboð á hleðsluinnviðum
Lærdómur
Stærsti sparnaðurinn næst á hönnunarstigi, áður en byrjað er að byggja.
Tengd þjónusta
Með svipað verkefni í huga?
Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.
Senda tölvupóst- Netfang
- enord@enord.is
- Sími
- 840 4935
- Hrafn Leó Guðjónsson
- Staðsetning
- Reykjavík