Öll þjónusta

Hleðsluinnviðir fyrir flota

Hleðsluinnviðir sem henta rekstrinum

Rafvæðing flota stendur og fellur með hleðslunni. Við greinum aksturinn, reiknum hleðsluþörfina og hönnum innviði sem duga fyrir daglegan rekstur án þess að heimtaugin verði stærri en hún þarf að vera.

Hleðsluinnviðir fyrir flota

Fyrir hverja

Flutningafyrirtæki, rútufyrirtæki, sveitarfélög og aðra sem reka vörubíla, rútur eða sendibíla og eru að skipta yfir í rafmagn.

Hvað gerum við

  • Greinum orku- og aflþörf út frá raunverulegum akstri og stöðutíma bílanna
  • Setjum upp hleðsluáætlun: hvenær er hlaðið, hve lengi og með hvaða afli
  • Ákveðum fjölda og afl hleðslustöðva, AC og DC
  • Reiknum stærð heimtaugar og sjáum um samskipti við dreifiveitu
  • Hönnum hleðsluinnviðina: staðsetningu búnaðar á athafnasvæði, spennistöðvar, strengjaleiðir og rafmagnshönnun
  • Metum sameiginlega nýtingu með almenningshleðslu þar sem það á við

Það sem þú færð

Hönnunarskýrslu með aflþörf, hleðsluáætlun, uppdráttum og kostnaðarmati. Grunn sem hægt er að fara með beint í útboð eða framkvæmd.

Réttar stöðvar í réttri stærð
Hve margar hleðslustöðvar þarf og hve öflug hver þeirra á að vera.
Rafvæða núna, ekki þegar dreifikerfið er tilbúið
Hve stóran hluta flotans núverandi heimtaug ber nú þegar.
Allir fara fullhlaðnir
Bílarnir hlaðnir og forhitaðir fyrir fyrstu ferð, sumar og vetur, skipulagt út frá áætluninni.
Lægri aflkostnaður, á hverju ári
Lægri afltoppur þýðir minni heimtaug og lægri aflgjöld.
Svigrúm til að stækka
Hve mörgum bílum má bæta við á stöðinni og hvenær þarf meira afl.
Tilbúin fyrir slæma daginn
Hvernig reksturinn ræður við bilaða hleðslustöð eða bíl sem kemur seint, og hve mikið svigrúm er í kerfinu.

Áfangaskipt uppbygging

Heimtaugin er ákveðin fyrir lokastöðu frá upphafi, jarðvinna og lagnaleiðir gerðar einu sinni og hleðslustöðvum bætt við eftir því sem bílum fjölgar. Dæmið hér að neðan er úr raunverulegu verkefni fyrir flutningafyrirtæki sem fer úr 2 í 20 rafknúna vörubíla.

Dæmi: flutningafyrirtæki, 2 til 20 rafknúnir vörubílar, hlaðið yfir nótt
ÁfangiVörubílarAfltoppurHeimtaug
Nú2um 70 kW315 A
Eftir 2 ár4um 135 kW315 A
Fullur floti20um 525 kW900 A

35 kW á hvert tengi duga yfir nóttina. Jarðvinna er gerð einu sinni fyrir lokastöðu.

Áfallaþol

Við prófum hvað gerist þegar hleðslustöð bilar eða bíll kemur seint inn, og hve mikið svigrúm er í kerfinu áður en fyrsta ferð morgunsins raskast.

Það sem þú leggur fram

  • Tímaáætlun eða vaktaplan
  • Flotagögn: rafhlöðustærð og notkun
  • Grunnmynd af stöðinni
  • Raforkugjaldskrá

Engar mælingar þarf til að fá fyrsta svar. Vinnan fer að mestu fram í fjarvinnu og niðurstöður eru kynntar á netfundi.

Hafa samband

Sendu okkur áætlun og flotagögn og við metum hleðsluþörfina. Engar mælingar þarf til að fá fyrsta svar.

Hafa samband

Ertu að rafvæða flota?

Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.

Senda tölvupóst
Netfang
enord@enord.is
Sími
840 4935
LinkedIn
Hrafn Leó Guðjónsson
Staðsetning
Reykjavík