Öll verkefni

Flutningafyrirtæki · Flutningar, áfangaskipt rafvæðing

Úr 2 í 20 rafknúna vörubíla í þremur áföngum

Aflþörf og áfangaskipt uppbygging hleðsluinnviða fyrir flutningafyrirtæki sem rafvæðir vörubílaflotann í skrefum. Ein hleðsluaðstaða í bækistöð dugar öllum flotanum.

2 → 4 → 20 vörubílar · 315 A → 900 A

Sækja dæmisskýrslu (PDF, enska)
Úr 2 í 20 rafknúna vörubíla í þremur áföngum

Áskorunin

Fyrirtækið rekur 16 vörubíla frá tveimur stöðum og vill að allur flotinn hlaði á einum stað í bækistöðinni. Rafvæðingin fer fram í þremur áföngum: 2 bílar nú, 4 eftir tvö ár og 20 til 25 í fullri rafvæðingu. Spurningin var hve stóra heimtaug þyrfti í hverjum áfanga, hve öflugar stöðvar og hvernig mætti byggja upp án þess að grafa upp lóðina oftar en einu sinni.

Hvað gerðum við

  • Hermdum hvern áfanga mínútu fyrir mínútu með 200 til 300 km akstri á bíl á dag og 1,2 til 2,0 kWh/km
  • Reiknuðum lágmarksafl á tengi, afltopp og orkuþörf í hverjum áfanga
  • Mátum rafhlöðustærð vörubíla fyrir vetrarakstur
  • Lögðum til staðsetningu heimtaugar, spennistöðvar og hleðslubása og hvaða jarðvinnu á að gera strax í fyrsta áfanga

Niðurstaða

  • Áfangi 1: 2 bílar, um 70 kW afltoppur, 315 A heimtaug
  • Áfangi 2: 4 bílar, um 135 kW, sama 315 A heimtaug
  • Fullur floti: 20 bílar, um 525 kW, 900 A heimtaug
  • 35 kW á hvert tengi duga yfir nóttina. Jarðvinna og lagnir fyrir sex bása gerðar í fyrsta áfanga
  • Rafhlaða að lágmarki 600 kWh til að standast vetrarakstur

Lærdómur

Hleðsla yfir nótt þarf ekki öflugar stöðvar. Hún þarf rétta heimtaug frá upphafi og lóð sem er grafin upp einu sinni.

Tengd þjónusta

Með svipað verkefni í huga?

Fyrsta samtalið er stutt og án skuldbindinga. Sendu okkur línu og við finnum út hvað þarf.

Senda tölvupóst
Netfang
enord@enord.is
Sími
840 4935
LinkedIn
Hrafn Leó Guðjónsson
Staðsetning
Reykjavík